Reykjanesfólkvangur

Fólkvangur

Reykjanesfólkvangur er fólkvangur á suðaustanverðu Reykjanesi. Hann var stofnaður árið 1975 og er um 300 km2 að stærð. Sveitarfélögin Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Grindavík og Reykjanesbær koma að stjórnun hans. Í apríl 2024 lýsti fulltrúi Reykjavíkur yfir þeirri ósk að borgin drægi sig úr rekstri fólkvangsins.[1]

Reykjanesfólkvangur.

Á svæðinu eru tveir aðalfjallsshryggir: Núpshlíðarháls og Sveifluháls (300-400 metrar). Austast eru Brennisteinsfjöll sem ná 500-600 metrum. Háhitasvæði er við Seltún og er stærsta vatnið Kleifarvatn. Við sjó eru áhugaverðir staðir Selatangi þar sem má sjá mannvistarleifar og Krýsuvík og Krýsuvíkurbjarg. [2]

Bláfjallafólkvangur og Heiðmörk eru við norðurmörk fólkvangsins. Jarðvangurinn Reykjanes Geopark fer að hluta saman við fólkvanginn.

Tilvísanir

breyta
  1. „Reykjanes(skaga)fólkvangur - fortíð, nútíð og framtíð?“. Ferlir. 24. apríl 2024.
  2. „Reykjanesfólkvangur“. Visit Reykjanes. Sótt 16.7.2024. Upplifðu Reykjanes, skoðað 16. ágúst 2019.

Tengill

breyta