Norðurlöndin
Norðurlöndin er samheiti sem notað er yfir fimm lönd í Norður-Evrópu: Ísland, Finnland, Svíþjóð, Noreg og Danmörku. (Stundum er orðið Skandinavía notað í sömu merkingu.) Lönd þessi eru einnig öll aðildarríki að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Einnig eru sjálfstjórnarlöndin Áland, Færeyjar og Grænland aðilar að ráðinu og ráðherranefndinni.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7c/Location_Nordic_Council.svg/250px-Location_Nordic_Council.svg.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8f/Norden.jpg/250px-Norden.jpg)
Danmörk, Finnland og Svíþjóð eru nú aðilar að Evrópusambandinu og Ísland og Noregur nátengd með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu. Sjálfstjórnarsvæðin Færeyjar og Grænland standa utan Evrópusambandsins.
Saga Norðurlanda
breytaSaga Norðurlanda hefur verið samtvinnuð frá upphafi, frá því að ríki fóru að myndast á tíundu öld einkenndust samskipti þeirra lengi vel mest af valdabaráttu, styrjöldum og ágreiningi.
Tengt efni
breyta- Norðurlandaráð
- Halló Norðurlönd
- Helsingforssamningurinn
- Norræna félagið
- Nordjobb
- Saga Norðurlanda
- Eystrasaltsráðið
- Norðurskautsráðið
- Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri
- Samstarfsráðherra Norðurlanda
- Nordplus
- Norræna menningargáttin
- NordForsk
- Norðurlönd í brennidepli
- Norræna Atlantsnefndin
- Norræna vegabréfasambandið