Fort McMurray
Fort McMurray er borg í sveitarfélaginu Wood Buffalo í norð-austur Alberta fylki í Kanada. Borgin liggur á mótum við Athabascafljótsins og Clearwaterfljótsins og er 435 kílómetra norðaustur af höfuðstaðnum Edmonton. Þar búa rúm 60.000 manns. Athabasca-olíusandarnir umkringja borgina sem hefur verið miðpunktur í olíuiðnaði í fylkinu.
Uppruna borgarinnar má rekja til Hudsonflóafélagsins sem stofnaði stöð þar fyrir verslun á dýraskinnum árið 1870. Á 4. áratug 20. aldar var farið að vinna olíu úr sandinum á svæðinu. Á 8. áratugnum stórjókst olíuframleiðslan og jafnframt íbúafjöldinn.
Borgin er umkringd barrskógi: Hvítgreni, nöturösp, balsamösp og næfurbjörk eru helstu tré á svæðinu. En einnig má finna mýralerki og svartgreni í mýrlendi.
Saga
breytaSkógareldar árið 2016
breytaMiklir skógareldar brustu út í grennd við borgina í maí 2016. Um 10% húsa borgarinnar eyðilögðust og íbúar frá borginni og nærliggjandi svæðum flúðu aðallega til Edmonton og Calgary. [1]
Í byrjun júní hófu íbúar bæjarins að snúa aftur, tæpum mánuði eftir að þeir neyddust til að flýja eldana. [2] Talið er að eldarnir hafi verið af manna völdum. [3]
Heimild
breytaFyrirmynd greinarinnar var „Fort McMurray“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. maí 2016.
Tilvísanir
breyta- ↑ Ástandið í Fort McMurray skárra en óttast var Rúv. Skoðað 10. maí, 2016
- ↑ Fyrstu íbúar Fort McMurray snúa heim í dag Rúv. skoðað 2. júní, 2016.
- ↑ Eldarnir í Alberta af mannavöldum Rúv, skoðað 15. júní, 2016.