Dynjandi
foss á Vestfjörðum
Dynjandi (eða Fjallfoss) er 100 metra hár foss í Arnarfirði á Vestfjörðum Íslands. Fossinn kemur ofan af Dynjandisheiði og fyrir neðan hann er einnig eyðibýli sem heitir Dynjandi. Á bjargbrún er fossinn 30 metra breiður en 60 metra breiður neðst. Fleiri fossar eru í fossaröðinni: Bæjarfoss, Hundafoss, Göngumannafoss, Strompglúfrafoss og Hæstahjallafoss. Fossinn var friðlýstur árið 1980.
Dynjandi | |
---|---|
Staðsetning | Arnarfjörður, Vestfirðir, Ísland |
Hnit | 65°43′57″N 23°11′55″V / 65.7325192°N 23.1985946°V[1] |
Hæð | 100 m |
Vatnsrás | Dynjandisá |
Meðal sumarrennsli Dynjandisár er 2 til 8 rúmmetrar en meðal vetrarrennsli er 1 til 4 rúmmetrar vatns á sekúndu. Upptök sín á áin í smávötnum á Dynjandisheiði.
Myndir
breytaHeimild
breyta- „Dynjandisfoss“. Sótt 1. desember 2005.
Tilvísanir
breytaTenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Dynjandi.
- „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“. Vísindavefurinn.
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.