Alfred Nobel
Alfred Nobel (21. október 1833 - 10. desember 1896) var sænskur athafnamaður, efnafræðingur, verkfræðingur og uppfinningamaður. Hann uppgötvaði dínamít og var eigandi Bofors vopnaverksmiðjanna. Auðlegð hans var notuð til að stofna Nóbelsverðlaunin.[1][2]
Alfred Nobel | |
---|---|
Fæddur | 21. október 1833 |
Dáinn | 10. desember 1896 (63 ára) |
Störf | Efnafræðingur, verkfræðingur, frumkvöðull og uppfinningamaður. |
Æviágrip
breytaHann lofaði frið en uppfinningar hans voru notaðar í stríðsskyni. Þessi tvíhyggja er grundvöllur skrifa hans um tilgang Nóbelsverðlaunanna „til sem mestum ávinningi fyrir mannkynið“ í erfðaskrá sinni. Alfred Nobel hafði mikinn áhuga á vísindum og listum og meðal allra vísindaverka var hann einnig höfundur nokkurra skáldskaparverka. Hann samdi ljóð bæði á sænsku og ensku. Hann átti líka bókasafn með tæplega 2.600 bindum sem dreift var á um 1.200 titla, sem flestir voru fagurbókmenntir.[3]
Alfred Nobel stofnaði um 30 fyrirtæki um allan heim.[4] Stundum átti Nobel einungis fjárhagslega hagsmuni í fyrirtæki en tók ekki virkan þátt í stjórnun.
Frá árinu 1901 hefur Nóbelssjóðurinn (Nobelstiftelsen) veitt Nóbelsverðlaunin árlega á dánarafmæli Nobels, 10. desember. Í lok 20. aldar öðlaðist þessi árlegi atburður frekari stöðu þar sem 10. desember var merktur sem Nóbelsdagur í sænskum almanökum og varð almennur fánadagur í Svíþjóð.
Frumefnið nóbelín (No) með atómnúmer 102 er nefnt eftir Alfred Nobel.[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Alfred Nobel“ (sænska). Nationalencyklopedin. Sótt 6. október 2022.
- ↑ „Alfred Nobel“ (enska). Encyclopædia Britannica. Sótt 6. október 2022.
- ↑ Erlandsson, Åke (2002). Alfred Nobels bibliotek : en bibliografi (sænska). Stockholm: Atlantis. bls. 9. ISBN 91-7486-630-3. OCLC 54826151.
- ↑ „Alfred Nobel“. web.archive.org. 26. maí 2013. Afritað af uppruna á 26. maí 2013. Sótt 13. maí 2022.
- ↑ „nobelium“ (sænska). Nationalencyklopedin. Sótt 6. október 2022.
Tenglar
breyta- Alfred Nobel - friðarvinurinn sem framleiddi drápstækin; 1. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1934
- Alfred Nobel - friðarvinurinn sem framleiddi drápstækin; 2. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1934
- Hefði Nobel fengið Nóbelsverðlaunin?; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1969
- Nóbelsverðlaunin; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1955